Hús Grunnskólans í Breiðdalshreppi var tekið í notkun haustið 1992. Það er hannað af dr. Magga Jónssyni, fyrir u.þ.b. 80 nemendur. Áður hafði kennsla farið fram í eldra húsnæði frá 1958 að Staðarborg.                                                                                                                                    Frá því Grunnskólinn var tekinn í notkun hefur verið byggt nýtt og veglegt íþróttahús (2001) og haustið 2002 bættist svo við sundlaug.                                             
Nemendafjöldi var 27 í upphafi  skólaárs (2010-2011) og því rúmt um nemendur. Fækkun hefur verið mikil ef litið er til ársins 1978, en þá voru 70 nemendur í grunnskólanámi að Staðarborg í átta bekkjardeildum. Nemendur grunnskólans eru á aldrinum 6 - 16 ára í 1.-10. bekk. Við skólann eru starfandi 5 kennarar og einn stundakennari.