25. nóvember.  Með hugann fullan af hetjudraumum

Ljóðskáldið Aðalsteinn Ásberg og söngvaskáldið Svavar Knútur flytja brot úr verkum Steins Steinarrs og segja frá lífi og list byltingarskáldsins, sem varð með tíð og tíma þjóðareign. Ferill Steins er rakinn í ljóðum og söngvum, enda hafa mörg tónskáld sótt innblástur í verk hans. Ádeila, heimspeki, ást og nútími eru stikkorð sem vísa á skáldið sem átti stærstan þátt í formbyltingu ljóðsins á Íslandi.

 


 

24. nóvember. Leikhúsferð fyrir nemendur

540 gólf - Leikhús kynnir:

Hvað Ef – Skemmtifræðsla í Valaskjálf

·    Foreldrasýning- sunnudaginn 27.nóvember 2011 kl. 20.00

·    Nemendasýningar- mánudaginn 28. nóvember 2011

Hvað Ef er uppistand fyrir unglinga, foreldrar og kennara um mörg þau málefni og freistingar sem ungt fólk stendur frammi fyrir um það leiti sem það breytist úr börnum í fullorðið fólk.

Hvað Ef fjallar um viðkvæm mál eins og vímuefni, áfengi, kynferðisofbeldi, ölvunarakstur, einelti og foreldravandamál. Sýningin tekur á þessum þáttum á nýstárlegan hátt með skemmtun og fræðslu.

Flytjendur: Guðmundur Ingi Þorvaldsson, Ólöf Jara Skagfjörð og Ævar Þór Benediktsson.

Leikstjórn: Gunnar Sigurðsson.

Sýningartími er 60 mín.

Verkið hefur hlotið einmuna lof unglinga, foreldra, kennara og þeirra sem hafa unnið við forvarnir og fræðslu. Með húmorinn og einlægnina að vopni einsetjum við okkur að opna umræðuna um raunveruleika ungmenna á Íslandi. Sýningin er gagnvirk. Við erum með flotta heimasíðu þar sem fólk getur fengið allar nánari upplýsingar og sent okkur póst sem við svörum alltaf.

Hægt er að nálgast upplýsingar um verkið á:

http://www.hvadef.com/

Umsagnir áhorfenda:

http://www.540floors.com/hvadef/um-hvad-ef/alit-a-syningunni?page=2

 


 

1. nóvember.  "Tónlist fyrir alla".... 2. nóvember kl. 8:30.

Sigurður Flosason, saxófónleikari  og  Pétur Grétarsson, tölvuhljómborðsleikari

flytja dagskrá sem nefnist:  Raddir þjóðar.

"Í þessari dagskrá, sem nefnist “Raddir þjóðar” má segja að tónlistararfur íslensku þjóðarinnar sé tekinn til skoðunar á nýstárlegan hátt.
Börnin fá að heyra gamlar söngupptökur sem varðveittar eru á Stofnun Árna Magnússonar og Þjóðminjasafni Íslands, leiknar af geisladiski og tölvu samhliða hljóðfæraleik, söng og töluðu máli tónlistarmannanna. Gömlu og nýju er blandað saman á afar áhugaverðan máta svo úr verður hljóðheimur sem á fáa sinn líka. En húmorinn er ekki langt undan og það vekur jafnan mikla kátinu þegar börnunum er kennd listin að “dúlla” enda er kennarinn hinn eini sanni Gvendur dúllari sjálfur!
Margt mun því koma skemmtilega á óvart meðan á dagskránni stendur.

Dagskráin vakti mikla athygli þegar hún var frumflutt á Listahátíð í Reykjavík árið 2002 og voru tónlistarmennirnir, þeir Sigurður Flosason og Pétur Grétarsson m.a. tilnefndir til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs í kjölfarið." (Tekið af heimasíðunni:  www.tonlistfyriralla.is )

23. september.  Fjarðaballið.....

Fjarðaballið

Ballið verður haldið föstudaginn 30. sept. 2011 í félagsheimilinu Valhöll á  Eskifirði. Sjá auglýsingu hér:

 

16. september.  Samræmd könnunarpróf...

fara fram í viku 38 (19.9-23.9).  Prófin hefjast öll klukkan 9:00 og standa til klukkan 12

 

13. september.  Útreiðartúr.

Skólinn mun fara með nemendur í útivistarferð á fimmtudag.  Farið verður inn í Höskuldsstaði, þar sem María mun taka á móti nemendum og bjóða þeim upp á útreiðartúr á hestum sínum.  Mun hún fara með nemendur í tveimur hópum og er því tilvalið fyrir þann hóp sem bíður að líta eftir berjum á meðan.

Nemendur þurfa að hafa með sér nesti fyrir nestistímann, en Bláfell mun sjá nemendum fyrir mat í hádeginu.

Þó veðurspá sé sæmilega hlýleg er nauðsynlegt fyrir nemendur að vera vel klæddir, með húfu og vettlinga.

Farið verður af stað frá skólanum um klukkan níu og komið til baka við lok venjulegs skóladags.  Nemendur skulu því mæta með skólatösku um morguninn.

 

7. september.  Tónlistarnám...

Ákveðið hefur verið að bjóða aftur upp á tónlistarnám í samstarfi við Grunnskóla Breiðdalshrepps. József Béla Kiss tónlistarkennari á Djúpavogi mun koma einn dag í viku (föstudaga) og sjá um kennsluna. Boðið verður upp á 30 mín.  kennslutíma (sem samsvarar hálfu námi) til að byrja með. Verð fyrir haustönn er kr. 17.500,- (systkinaafsláttur er 25%)

József ætlar að vera kominn hingað um klukkan 9 á föstudaginn og kanna áhuga nemenda og skrá þá sem þegar kunna að hafa ákveðið sig.

 

 

5. september.  Tilkynning um breytingu á sundkennslu.

Þriðjudaginn 6. september og fimmtudaginn 8. september hefst sundkennsla seinna en vanalega.  Hópur 1 byrjar kl. 17:00 og hópur 2 kl. 18:00.

 

 

29. ágúst.  Útivistarferð.

Ætlunin er að fara í útivistarferð á miðvikudag inn í Jórvík.  Farið verður frá skólanum um klukkan 8:00.  Allir nemendur fara.

Nemendur eru beðnir um að hafa með sér nesti og drykk fyrir kaffitímann, en svo verður grill og gos í hádeginu.  Heimkomutími óviss, en þó tímanlega fyrir sundið. 

Vilji menn tína einhver ber er gott að hafa með sér smá ílát fyrir þau.

Þó veðurspá sé góð, er nauðsynlegt að taka með sér yfirhafnir og jafnvel sokka til skiptanna em menn bleyttu á sér fætur.

 

 

23. ágúst.  Sundkennsla....

hefst fimmtudaginn 25. ágúst.  Nemendur hafa fengið stundatöflu sem þau eiga að taka með sér heim.

 

 


 

17. ágúst.  Starf Grunnskólans

hefst mánudaginn 22. ágúst nk.  Nemendur mæti klukkan 10:00.  Kennsla hefst skv. stundasksrá næsta dag.

Sundkennsla hefst síðan fljótlega, en verður auglýst nánar síðar.